Fréttir

Byrjuð að flytja

05.05.10, 10:48

Við fengum íbúðina okkar aftur síðasta sunnudag og erum nú í fullum gangi að græja hana svo við getum flutt inn. Einar er búinn að smiða borð inni í geymslu, Helgi Steinar málaði hornvegginn inni í stofu fyrir okkur og Sigrún er hálfnuð með að mála barnaherbergið. Það er búið að ganga frá öllum eldhúskössum og eitthvað inni á baði. Sigrún ætlar að reyna að klára vegginn sinn í barnaherberginu í dag og þá er bara eftir að mála eina krítartöflu og bóna gólfið. Við eigum svo eftir að klára að pakka í Árgerði svo við getum flutt allt dótið en það er ekkert mikið sem er eftir þar. Vonandi nær Sigrún að pakka slatta í dag svo við getum flutt megninu af dótinu á morgun eða hinn. En útlitið er gott og fyrir utan vel þreytta mömmu og pabba þá gengur þetta ágætlega.  Okkur hlakkar mikið til að geta farið að sofa þarna. :)



Flutningar í vændum

20.04.10, 16:38

Þá styttist í að litla fjölskyldan flytji aftir í Snægilið. Við fáum íbúðina okkar aftur í byrjum maí og ætlum þá að byrja að undibúa hana með að mála og svona smá dútl áður en við flytjum. Okkur hlakkar mikið til að komast aftur í bæinn og vera aðeins nær fólki. Sigrúnu er farið hlakka til að geta farið í göngutúra annarstaðar en meðfram þjóðveginum. Hún er að klára í skólanum og fer að komast í sumarfrí. Þá getur hún notið þess að vera með Andra án þess að vera með einhver skólaverkefni hangandi yfir sér. Við erum svo komin með pláss fyrir hann hjá Möggudóru frænku sinni sem er dagmamma. Þar byrjar hann í lok ágúst þegar skólinn byrjar aftur hjá Sigrúnu. 



Andri Þór

Sigrún - 31.03.10, 10:49

Þá er búið að skíra drenginn okkar. Hann fekk nafnið Andri Þór síðasta laugardag. Skírnin fór fram í Vallakirkju í Svarfaðardal og veislan var haldin á Rimum. Þetta var yndislegur dagur og gaman að sjá hvað það komu margir. Andri hafði rosa gaman af prestinum og brosti til hanns þegar hann las upp úr bókinni sinni í skírninni. Við fengum hluta af samkórnum til að syngja og Andri var alveg dáleiddur þegar kórinn söng. Það kom aðeins stutt andartak þegar hann ætlaði eitthvað að fara að kvarta en þá var mamma snögg með snuðið. Veislan heppnaðist vel enda fengum við hjálp frá Hörpu vínkonu okkar, hún var lifesaver. Hefðum ekki geta gert þetta án hennar. Hún var klár með matinn og kaffið þegar athöfnin var búin og við gátum notið veislunar. 

En okkur langar að þakka öllum þem sem hjálpuðu okkur með að elda og skreyta og gera þennan dag svona góðan.

Andri Þór Einarsson þakkar fyrir sig :) 


Komin heim

Sigrún - 21.03.10, 10:37

Þá erum við snúður komin heim til pabba. Stráksi útskrifaðist á föstudaginn og við fengum Þóreyju til að pikka okkur upp og skutla okkur á vellinn þar komumst við með næstu vel sem var kl 13. Þeim lá eitthvað mikið á að kalla út í vel því að ég var í miðju kafi að skipta á drengnum þegar er kallað fyrst. Aðeins hálfri mínutu seinna er kallað aftur og stuttu seinna er svo kallað á mig. Og ég í stress kasti að klára að skipta á honum. Þegar ég svo kem loksins að hliðinu heiri ég að konan kallar bíðið aðeins og ég klára að setja á hann húfu og klæða hann í. Ég baðs fyrirgefningar á þessu og sagði ég hafði verið að skipta á honum og ég fekk sko ekki vott að samúð, Það var ekkert nema fílusvipur á konunni. En ég næ að róa mig niður þegar ég er kominn inn í velina og búin að festa bílstólinn. Stráksi var vakandi alla leiðina og fannst ekkert leiðinlegt að fljúgja, enda 3 ferðin hanns. Hann varð ekkert smá hissa þegar vélin fór í gang, ótrúlega gaman að fylgjast með honum. 
Einar kom og sótti okkur á völlin og við rúlluðum fyrst upp í Tengi með honum að borða og svo fórum við í Stapasíðuna til Doddu ömmu og biðum þar eftir að Einar kláraði að vinna.

En Það er rosa gott að vera komin heim. Við vonum bara að það verði allt í lagi með snúðinn okkar í framtíðinni og við þurfum ekki að fara í aðra svona sjúkrahúsaferð. Mig langar að þakka öllum sem kíktu í heimsókn það lífgaði upp á daginn hjá okkur og gerði þessa viku þolanlega :)


Komin með herbergisfélaga

Sigrún - 16.03.10, 11:50

Dagarnir fara að renna sama hjá manni sérstaklega eftir 2 svefnlitlar nætur í röð. En ég ætla að reyna að rifja upp það sem gerðist í gær. 

Stráksi losnaði við morfínið í gær og fær núna bara verkjastillandi stíla. Hann er byrjaður að fá 50 ml af mjólk reglulega en það er altaf tékkað á sondunni og sogið upp það sem er eftir í maganum áður en hann fær næsta skamt. Það er gert til að sjá hvað það fer mikið niður. Stefnan er að það sitji ekkert eftir, þá vitum við að hann er að melta vel. En eins og er situr enn slatti eftir í maganum og í stað þess að hann gubbi því þá er það sogið upp. Hann kúkaði svo svörtu í eina bleyjuna sem er víst eðlilegt eftir svona aðgerð. En Edda frænka kíkti í heimsókn og sá litla stubb, rosa fínt að sjá önnur andlit en bara lækna og hjúkkur. :)

Nóttin var frekar erfið, hann rumskaði mikið og ég þurfti oft að rétta honum snuðið. Svo vaknaðai hann hálf 8 og var orðin vel svangur. Hann fékk stíl og svo 50 ml af mjólk og var rosa glaður eftir það. 

En stefna er eins í dag og í gær, sondan lokuð og við bíðum bara eftir að mjólkin fari að fara í gengnum hann. Ef ekkert breytist í dag þá þarf hann að fá meiri en bara næringarvökvan í æð. Við fengum svo herbergisfélaga í dag 3 vikna gamalt barn sem vonandi stoppar ekki lengi. Stráksi varð alveg crazy þegar læknarnir komu og tölu við hina foreldrana sem eru pólsk og tala bara ensku. Ætli börnin verði ekki tuðandi til skiptist.

1 2 3 4 5 6 Næsta >>

Prentvæn útgáfa

  Núna: 1
  Í dag: 5
  Í allt: 4836