Fréttir Hvað er að frétta? 03.03.10, 15:03 Lífið gengur rosa vel hjá okkur. Litli stubburinn okkar stækkar hratt og var í dag í fötum með bleyju 4.8 kg. Hann er búinn að fara í skoðun á barnadeildinni á FSA og það líst öllum rosa vel á hann. Skurðurinn eftir aðgerðina er orðinn að litlu öri í naflanum á honum og það er ekki að sjá á drengnum fyrir utan skrítinn nafla að hann hafði þurft að fara í aðgerð.
Sigrún er búin að vera að sinna skólanum með fæðingarorlofinu. Hún vinnur að mestu heima en fer annaðslagið fyrir hádeigi til Akureyrar í skólann. Það styttist í að Einar fari að vinna, ekki nema 9 dagar eftir af fríinu hanns. Þá fer stubburinn bara með mömmu sinni í skólann. Það var tekin smá prufa á það í morgun og það gekk bara vel. Sá litli lagði sig á dúnúlpu á skrifborðinu hjá Sigrúnu á meðan hún vann.
En já það líður öllum vel. Það er kominn snjósleði í sveitina sem sest á förunum á túninu í kringum húsið. Við vonum bara að snjórinn haldist aðeins lengur svo við getum prufað að skutla fólkinu upp í fjall með skíði og snjóbretti. Það verður gaman þegar sá litli verður stærri og getur farið að renna sér.
Við hendum svo inn nýjum myndum í dag. |