Öllum er mér lokið

Tóntegund: D
Tempo: 140 BPM • 4/4

✍️ Höfundar

Ari Baldursson — Lag + texti
Textinn er skrifaður í júní 2023 og er ástandið í samfélaginu á þeim tíma kveikjan að laginu. Þá eins og nú var stál í stál á mörgum vígstöðvum; fréttirnar voru undirlagðar af samningaþrasi, verðbólgu og fólki sem fór hreinlega af límingunum yfir loftslagsmálum og orkuskiptum. Umræðan um kosningar vegna Evrópusambandsmála var ekki einu sinni komin á dagskrá þá, en þverhausar og þursabelgir þrasa engu að síður í einum kór þar til heilinn á manni verður hálfsljór og engan frið er að fá.

Lagið er hressilegur country-boogie slagari en undir niðri kraumar beitt kaldhæðni. Boðskapurinn snýst nefnilega um þessa „bragabót“ sem okkur er stöðugt seld; þessa tálvon um að búið sé að finna lausnina og allt sé á réttri leið. Okkur er hamrað á því að allt sé í lagi og það sé verið að redda málunum – og við það á lundin að léttast.

Raunveruleikinn er hins vegar sá að sagan hefur sýnt okkur síðustu áratugi að ástandið lagast lítið sem ekkert. Við hringsnúumst í sama farinu á meðan „meðalið“ sem ráðherrarnir boða reynist oft vera lítið annað en innantóm loforð sem halda okkur gangandi á tálvoninni einni saman.

🎹 Útsetning

Ari Baldursson — Producer, Útsetning

🎤 Flytjendur

Ari Baldursson — Söngur, Hljómborð
Francesco Coppola Bove — Trommur
Frank A. Markow — Rafgítar, Kassagítar, Stálgítar, Hammondorgel

🎚️ Production

Ari Baldursson — Upptökur, Forritun
Francesco Coppola Bove — Upptökur
Frank A. Markow — Upptökur
Jeff Stauffer — Hljóðblöndun (mix), Mastering
0
🖨 Prenta Loka