Hetjulega ber sig hver sem nógan hefur kraft
Á þönum út um víðan völl og rífur bara kjaft
Flestum er þá sama hvort og eða hvernig fer
Bara ef það lendir ekki á mér
Hvað er það sem læðist svona hljótt um dimmann skóg
Löngu fyrr en nokkur hélt að komið væri nóg
Er það kannski orðið sem var sagt en ekki meint
Hefði verið betra fyrr en seint?
Ég leyfi þér að finna allar taugarnar í mér
Því ekki verður undan komist álögum frá þér
Þú lofar þá að losa aldrei lófatakið það
Því þá yrði lífið alveg hábölvað
Ég leyfi þér að finna allar taugarnar í mér…
Yfir dalnum hvílir þessi þunga þoku nótt
Hann barmafullur bíður þess að aftur birti fljótt
Döggin leggst með þunga sýnum yfir eyðisand
Þannig sefur okkar óskaland
A E
Outro: Þannig sefur okkar óska
A E
Þannig sefur okkar óska
A F#m E A
Þannig sefur okkar óskaland