Draumaheimur
Lagið fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um draumaheim eða útópíu. Þegar nóttin skellur á og skuggarnir lengjast má greinilega lesa úr textanum ákveðna krísu gagnvart raunveruleikanum og sterka þörf höfundarins til að flýja hann. Það var þó ekki fyrr en löngu síðar að höfundurinn áttaði sig á því hvað var í gangi á þessum tíma; lagið sprettur upp úr meðvituðum raunveruleikaflótta og ákveðinni afneitun á eigin niðurrifi.
Textinn fangar þessa djúpu tilvistarlegu þrá eftir því að sleppa undan óttanum og þrautunum – að flýja burt frá öllu því sem spillir heiminum, jafnt innra sem ytra, og leita athvarfs á vit staðar þar sem ríkir algjört öryggi. Boðskapurinn snýst um þessa sárgrætilegu þörf fyrir að finna ást, yl og frið í nýju upphafi þegar veruleikinn er orðinn of þungur og byrja lífið hreinlega á ný, frjáls og frír.
Intro: C – G - C – G (piano)
Langir skuggar komin nótt
Ég kaldan vermi vanga þinn
Við skulum haldast hönd í hönd
Við saman skulum svífa á braut
Langt í burt frá öllum þeim
Við saman finnum okkur stað
Sem örugt er að setjast að
Og njótum þess að vera til
Þar sem skærust lýsir sól
Og geislum stráir, byggð og ból
Burt frá öllu frjáls og frí
Við saman skulum svífa á braut…