Heiðarbýlið
Þegar ferðast er um hálendi Íslands, um afdali og heiðarlönd, má víða sjá merki um mannabústaði. Fólk kom sér upp aðsetri á ótrúlegustu stöðum og bjó þar við misjöfn kjör. Þessum bæjum – eða kotum – var gjarnan úthlutað til þeirra sem ekki vildu vera í vist hjá öðrum, enda var frelsið fólki efst í huga. Bæir og gripahús voru byggð úr því sem landið gaf; húsin entust illa og þurftu sífellt viðhald og endurbyggingu. Margar frásagnir hafa verið ritaðar um lífið á heiðunum, bæði ljúfar og síður góðar.
Maður kemst ekki hjá því að velta fyrir sér hvernig líf fólks og skeppna var á þessum býlum þar sem náttúruöflin voru, og eru enn, óvægin. Það er samt stutt í rómantíkina og vissulega er landið fallegt í góðu veðri, hvort sem er að sumri eða vetri.
Lagið Heiðarbýlið er lítil saga um eitt af þessum býlum. Tíminn eyðir smám saman ummerkjum og minningum, en sögurnar lifa – og í manninum býr alltaf taug sem togar hann sífellt aftur í átthagana.
Em Am
Fram í dalnum breiða, upp á milli heiða
Am B Em
Þar sem vindur strýkur rofabörð
Em Am
Sumarnóttin bjarta og vetrardægrið svarta
Am B Em
Fegurst er af öllu hér á jörð
D Em
Minningar og draumar hafa lifað hér
D Em
Hugur og hendur unnu þrek
Em Am
Jökullinn og áin víðáttan og þráin
Am B Em
Flætt er yfir spor og bernskubrek
Minningar og draumar hafa lifað hér…
Túngarðurinn horfinn þekjan sundur sorfinn
Mosabreiða hylur bæjarhól
Jökuldyngjan logar ferðalanginn togar
Heimsækja hann mætti ættarból
Minningar og draumar hafa lifað hér
Skepnurnar og fólkið höfðu þor
En bærinn féll í valinn þá vatnið flæddi um dalinn
Lífið dó með Drottni þetta vor
En bærinn féll í valinn þá vatnið flæddi um dalinn
Lífið dó með Drottni þetta vor