Tóti

Tóntegund: E
Tempo: 140 BPM • 4/4

✍️ Höfundar

Ari Baldursson — Lag + texti
Lagið „Tóti“ fjallar um skemmtikraftinn og mannvininn Þórólf. Hann var það sem kallað er „Spillemand“. Þessir karlar hafa alltaf verið til í ýmsum myndum; hér áður fyrr fóru þeir á milli bæja með hljóðfæri og léku fyrir dansi. Hljóðfærin voru af öllum gerðum, en ef engin voru tækin var bara sungið – eða spilað á greiðu og bréf.

Fiðlan var meðfærilegust þegar menn fóru fótgangandi á milli staða, en á Íslandi var harmónikkan algengust. Ég hef meira að segja heyrt sögur af „Tótum“ sem höfðu með sér heilu harmóníumin og fluttu þau á milli staða, þannig að menn lögðu ómælt á sig til að koma tónlistinni til fólksins. Margar sögur eru til af Tótum sem þótti sopinn góður og var gestum af þeim toga gjarnan veitt ríkulega, enda jók það oft á bæði spilagleðina og úthaldið.

Nútíma-Tótar grípa helst í gítarinn þegar halda á uppi stuði, þótt enn megi rekast á einstaka harmónikkuleikara sem heldur uppi stemningunni. Ég þekki ekki skapgerð þessa fólks almennt, en mig grunar að þetta séu mestu ljúfmenni sem hafa það eitt að markmiði að skemmta sér og öðrum og gleyma sér í tónlistinni. Okkar Tóti er allavega mikið ljúfmenni og dáður af öllum, og ekki er að heyra að hann hafi notað aðra vímugjafa en gleðina og góða skapið.

🎹 Útsetning

Ari Baldursson — Producer, Útsetning

🎤 Flytjendur

Ari Baldursson — Söngur
Beau Hendrich — Rafgítar
Julian Young — Hammondorgel, Rafpíanó
Kristinn Eiríkur Bóasson — Bassi
Þorleifur Jóhannsson — Trommur

🎚️ Production

Ari Baldursson — Upptökur
Beau Hendrich — Upptökur
Brynleifur Hallsson — Upptökur
Haukur Pálmason — Upptökur
Jeff Stauffer — Hljóðblöndun (mix), Mastering
Julian Young — Upptökur
0
🖨 Prenta Loka